Flutningsskilmálar og ábyrgðatakmarkanir skv. IATA
Smellið hér fyrir flutningsskilmála [IATA Resolution 600B]
Alþjóðlegar reglur og tímamörk um tjónakröfur má sjá á bakhlið farmbréfs. Sérstaklega er bent á ákvæði um takmörkun ábyrgðar farmflytjanda sem er að hámarki SDR 19.00 á hvert kg vörusendingar. Sendanda ber því að tryggja vörusendingar sínar með þetta í huga. Icelandair Cargo áskilja sér rétt til að taka ekki við vörusendingu sem ekki er pökkuð í samræmi við innihald og að greiða ekki tjón sem verður vegna slæmrar pökkunar eða skorts á merkingum.
Ef tjón verður á sendingu verður Icelandair Cargo að berast skrifleg tjónakrafa innan:
14 daga vegna skemmda
21 dags vegna seinkunar
120 daga vegna tapaðrar sendingar
Afrit af farmbréfi.
Afrit af vörureikningum, með tilvísun í þær upphæðir sem varða tjónið.
Lýsing á umfangi tjóns og þyngd þess hlutar sem varð fyrir tjóni.
Hverjum og hvenær tjónið var fyrst tilkynnt.
Kröfuupphæð.
Bankaupplýsingar og kennitala.
Icelandair Cargo
Tjónadeild
Brautarholti 10-14
105 Reykjavík
Fax: 50 50 630.
Tjónakrafan sendist til:
Eftirfarandi gögn og upplýsingar verða að fylgja tjónakröfunni: