Leiðbeiningar vegna innflutnings á bifreiðum frá USA
Mikilvægt er að bóka flutning bifreiðar hjá skrifstofu Icelandair Cargo á JFK flugvelli, sími +1 718 917 0660. Ekki er tekið á móti óbókuðum bifreiðum.
ICELANDAIR CARGO
CARGO BUILDING 77
JFK INT?L AIRPORT
JAMAICA, NY 11430
SÍMI: 718 917 0660/0661/0657
FAX: 718 917 8901
cargojfk@icelandair.is
Afhending bíls á flugvöll
Bifreið er afhent í vöruhús Icelandair Cargo á JFK flugvelli. Bensíntankur má ekki innihalda meira en sem nemur 1/8 hluta af honum.
Framvísun pappíra Pappírar sem fylgja þurfa bifreiðinni eru skráningarskírteini (Title), reikningur (Invoice) vegna kaupa á bifreiðinni, Shipper Export Declaration (SED) sem Icelandair Cargo JFK getur útbúið en sendandi bifreiðarinnar þarf að undirrita þá og Dangerous Goods Report (DGR). Ef þessir pappírar fylgja ekki með eða hafa verið sendir til Icelandair Cargo JFK er ekki hægt að flytja bifreiðina þar sem erlend tollayfirvöld krefjast þeirra við tollafgreiðslu. Allt að 5 virka daga getur tekið fyrir bandarísk tollayfirvöld að tollafgreiða bílinn eftir að öll gögn hafa verið lögð fram.
Leiðbeiningar vegna tollafgreiðslu á bifreiðum
Ef viðskiptavinur óskar eftir að Icelandair Cargo sjái um tollafgreiðslu á bifreiðinni er hægt að hafa samband við tollmiðlun okkar í síma 5050-785 eða senda tölvupóst:
tollskyrsla@icelandair.is
Ferlið:
*Viðskiptavinur þarf að fara í Umferðastofu, Borgartúni 30 og sækja um fastanúmer (bílnúmer).
*Icelandair Cargo bíður upp á þá þjónustu að senda þessa pappíra til eigenda bílsins og kostar það 1.245.- kr. eða að sækja þá til Keflavíkur.
*Leggja þarf inn frumrit af erlendu skráningaskírteini (Original Title) og farmbréfi frá Icelandair Cargo til Umferðastofu.
*Þegar fastanúmerið er komið þarf að hafa samband við tollmiðlun til að gera tollskýrslu í síma 5050-785 eða í tölvupósti tollskyrsla@icelandair.is .
*Eftir það mun eigandi hafa samband við Jón í síma 420-1782 hjá tollinum til að athuga hvenær tollafgreiðslan sé tilbúin.
*Síðan er komið til Keflavíkur og náð í bílinn, kostnaður greiddur og keyrt heim.