Búslóðaflutningar

Það er margt sem þarf að skoða þegar kemur að því að flytja búslóð á milli landa og mjög mikilvægt kynna sér vel upplýsingar um flutningaferlið.

Af öryggisástæðum þarf frakt sem flokkast undir persónulegar eigur að vera a.m.k. einn sólahring í vöruhúsi áður en hún er sett um borð í flugvél.

Persónulegar eigur eru ekki leyfðar sem frakt í farþegavélum til eða frá Bandaríkjunum.

1. Magn
Það er mjög mikilvægt að fólk átti sig á stærð búslóðar. Það er á ábyrgð viðskiptavinar að finna út hversu stór búslóðin er.

2. Tilboðsbeiðni
Þegar komið er á hreint með stærð búslóðar er hægt að fá verð í flutninginn með því að fylla út [tilboðsbeiðni]

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt
1) Innihaldslisti - listi sem telur upp allt sem er í búslóðinni.

4. Pökkun 
Viðskiptavinur verðu að ganga úr skugga um að búslóðinni sé vel pakkað til að þola flutninginn. Það er á ábyrgð viðskiptavinar að pakka öllu vel.

5. Bókun flutnings
Þegar komið er að því að bóka flutninginn er næsta skref að hafa samband við flutningsmiðlara.

Búslóð er alltaf fyrirfram greidd (Prepaid)

Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að [finna hér], og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.

Þú ert hér: