Búr þurfa að vera hefðbundin úr plasti / járni (ekki trébúr) og þarf að lofta vel um búrið. Dýrið þarf að geta staðið upprétt og snúið sér auðveldlega í búrinu. Í búrinu þarf að vera ílát fyrir vatn og það þarf að vera hægt að fylla ílátið án þess að búrið sé opnað.Matarílát þarf að vera annaðhvort innan í eða utan á búrinu til að hægt sé að gefa dýrinu fæði ef seinkun verður eða þegar dýrið ferðast á lengri leiðum (áframflutningur). Nauðsynlegt er að merkja búrið vel með nafni og símanúmeri móttakanda ásamt farmbréfsnúmeri.
Við innflutning á dýrum þurfa tilskilin leyfi að vera með samkv. Mast ehf http://www.mast.is
Einnig þarf að panta pláss fyrir dýrin á annað hvort á www.einangrun.is (Hafnir í Reykjanesbæ) eða www.hvatastadir.is (Hrísey) Þar eru allar upplýsingar um komutíma í einangrunarstöðvarnar, þar sem að það eru bara þrír dagar í mánuði sem að tekið er á móti dýrum. Panta þarf flug fyrir dýrin á hverri flugstöð fyrir sig. Sjá afgreiðslustaði erlendis á heimasíðu okkar undir “Áfangastaðir og skrifstofur” Allir pappírar þurfa að vera fastir við búrið í plastumslagi. Greiða þarf tollskýrslu, afgreiðslu- og þjónustugjald við innflutning á dýrunum. Einnig tollagjöld ef svo ber undir.
Tollskýrslugerð fer fram í Icelandair Cargo-Miðlun og þarf því að hafa samband við þau í sambandi við tollafgreiðsluna.
Dýr í einangrun verða ekki afhent nema búið sé að afgreiða tollamál samkvæmt Tollstjóra.
Sími hjá Miðlun er 5050-785, fax 4250-917 og netfang er tollskyrsla@icelandair.is
Ef verið er að flytja heim eftir árs eða meiri dvöl erlendis ber að gera grein fyrir því, annars þarf reikning frá seljanda.
Innflutningshöft eru á hrossum og hrossasæði.