Tollayfirvöld gera kröfu um að eftirfarandi atriðum sé fullnægt áður en má flyta farartæki úr landi:
1. Skráningarvottorð ökutækis.
a. Ef umráðamaður ökutækis er annar en eigandi skv. skráningarvottorði þarf samþykki skráðs eiganda. Samþykki eiganda þarf að vera skriflegt. (Ef skráður eigandi er eignarleigufyrirtæki eða tryggingarfyrirtæki er tölvupóstur frá tengiliðum í þessum fyrirtækjum nægilegt.)
b. Hægt er að afla upplýsinga um skráðan eiganda í ökutækjaskrá.
2. Þinglýsingarvottorð
Ef á ökutækinu hvíla veðskuldir þarf skriflegt samþykki veðhafa fyrir útflutningi. (Ef veðhafi er eignarleigufyrirtæki eða tryggingarfyrirtæki er tölvupóstur frá tengiliðum í þessum fyrirtækjum nægilegt.)
Icelandair Cargo bjóða upp á tollskýrslugerð í útflutningi.
Eftirfarandi fylgiskjöl þurfa m.a. að fylgja tollskýrslu:
Farmbréf
Vörureikningur
Skráningarvottorð
Þinglýsingarvottorð
Faxnúmer í tollafgreiðslu er: 425 0917
Nánari upplýsingar: í síma: 5050-785 og tollskyrsla@icelandair.is