Hættulegar sendingar, eða "Dangerous goods" er flokkur sendinga sem innihalda vörur sem geta verið hættulegar heilsu, umhverfi, öryggi og eignum.
Mjög áríðandi er að hafa samráð við söludeild Icelandair Cargo í síma 5050-435

eða (cargo@icelandair.is) sé grunur að innihald geti flokkast undir "hættulegar sendingar".
Þessar sendingar geta verið margþættar.
Hér að neðan eru örfá dæmi:
Þurrís, þurrís ýtir frá súrefni, getur verið hættulegur fólki sem meðhöndlar vöruna í lokuðum rýmum. Einnig sé um dýraflutninga að ræða í sömu vél.
Eldfim efni, svo sem ilmvötn, bensín og fl.
Blóðsýni, séu þau sýkt. Þau geta verið hættuleg þeim sem meðhöndla vöru komi leki á umbúðir.
Ætandi efni, geta valdið skemmdum á flugvél og öðrum hlutum.
Eiturefni
Gas
Eldspýtur og fl.
Allar vörur sem flokkast undir "hættulegar sendingar" þurfa sérstaklega meðhöndlun.
Mjög skýrar og strangar reglur gilda um flutning á þessum sendingum og sé farið eftir þeim er hægt að útiloka þá þætti sem gætuð valdið skaða. Þetta á við um greiningu, pökkun, merkingu, skráningu og meðhöndlun. Þær reglur sem unnið er eftir er gerðar af I.A.T.A (International Air Transport Association)
Allar hættulegar sendingar og fylgigögn eru skoðuð við móttóku og sé einn þáttur ekki fullnægjandi er sendingu vísað frá.