Flutningur á lifandi dýrum

Nokkuð er um að hunda og kattaeigendur flytji dýr til útlanda vegna búferlaflutninga eða til að selja. Við slíkan útflutning er mililvægt að kanna með góðum fyrirvara hvers konar heilbrigðiskröfur eru  gerðar í viðkomandi landi. Þessar upplýsingar er hægt að nálgast á www.mast.is Þar eru einnig að finna upplýsingar um útflutning hrossa.

Við útflutning á dýrum (Hundar og kettir) er staðlaðar kröfur um aðbúnað dýranna í flutningi. Sjá neðangreint:

  • Búr þurfa að vera hefðbundin úr plasti / járni (ekki trébúr).
  • Það þarf að lofta auðveldlega um búrið.
  • Dýrið þarf að geta staðið upprétt og snúið sér auðveldlega í búrinu.
  • Í búrinu þarf að vera ílát fyrir vatn og það þarf að vera hægt að fylla ílátið án þess að búrið sé opnað.
  • Matarílát þarf að vera annaðhvort innan í eða utan á búrinu til að hægt sé að gefa dýrinu fæði ef seinkun verður eða þegar dýrið ferðast á lengri leiðum (áframflutningur).
  • Nauðsynlegt er að merkja búrið vel með nafni og símanúmeri móttakanda ásamt farmbréfsnúmeri.

Markaðs- og söludeild veitir upplýsingar varðandi hestaútflutning export@icelandair.is

Hestaútflutningur er til USA, Skandinavíu og meginlands Evrópu.

Ef dýrið er söluvara þá þarf að gera tollskýrslu og býður Tollmiðlunin okkar upp á það, sími:5050-785 eða 
e-mail tollskyrsla@icelandair.is 
Ef dýrið er gjöf eða þín eign nægir að gera einfalda tollskýrslu eða svokallað E-8 form sjá á heimasíðu tollsins
www.tollur.is

Síðan er hægt að láta bóka dýrið hjá söludeild okkar í síma 505 043

Þú ert hér: