Flugtími - nýtt met!

12.01.2012

Icelandair Cargo sinnir reglulega leiguverkefnum í fraktflugi af ýmsu tagi.   Verkefnin eru margvísleg.  -Flogið hefur verið með lifandi dýr, sviðsmyndir fyrir bíómyndir, tækjakost hljómsveita og allskyns varahluti.   Leiguflugin koma oft upp með stuttum fyrirvara og þurfa margar deildir Icelandair Cargo auk deilda innan Icelandair að koma að skipulagningu. - Oft er verið að fljúga á nýja og framandi áfangastaði og þarf að að leggja grunninn að fluginu áður en farið er af stað í loftið.   Það þarf að taka út aðstæður á flugvöllum, ganga frá flugafgreiðslu, skipuleggja áhafnir svo eitthvað sé nefnt, til að tryggja að flugið verið sem farsælast.
 
Um daginn var flogið leiguflug sem fór frá Liege (Belgía) án millilendingar til Cincinnati (Bandaríkin) og þaðan til Turku í Finnlandi.   Farmurinn var hefðbundinn eða varahlutir í bíla.  

Það sem var sérstakt við þetta fraktflug er að það var slegið met hjá Icelandair varðandi flugtíma.   Flugleiðin Liege-Cincinnati var 9 klst, 55 mínútur í flugtíma en 10 klst, 10 mínútur í blokktíma.   Blokktími er sá tími sem líður frá því flugvél fer frá flugstæði (Off block) og þar til hún er komin á flugstæði á áfangastað (On block).

Samkvæmt upplýsingum frá Hilmari Baldurssyni - VP Flight Operations og Steinari Sveinssyni - Manager Operations Control var þessi flugleggur sá lengsti sem hefur verið floginn hjá Icelandair.

Hér var því um met í flugtíma að ræða hjá félaginu á Boeing 757.   Engin flugvél hefur flogið lengri fluglegg.

Til baka

Þú ert hér: