Icelandair Cargo hefur bætt við fraktflugi til og frá New York á miðvikudögum. Fyrsta viðbótar fraktflugið var 2.nóv s.l.
Fraktflutningum til og frá New York er því þjónað í dag með 2 vikulegum fraktflugum auk farþegaflugs. Viðbótarfraktflugið er góð viðbót við markað sem hefur farið vaxandi undanfarin misseri.