Icelandair Cargo getur flutt 2.200 tonn til 30 áfangastaða frá Íslandi á viku

14.07.2011

Icelandair Cargo býður viðskiptavinum sínum beint flug í um 190 brottförum til um 30 áfangastaða frá Íslandi núna í sumar. Þetta eru fleiri áfangastaðir en félagið hefur nokkru sinni boðið áður og er flutningsgeta kerfisins um 2.200 tonn á viku hverri. Félagið býður upp á flutning í eigin fragtvélum og í farþegavélum Icelandair.

Uppistaðan í flutningum félagsins frá Íslandi er ferskur fiskur og lifandi hestar. Til Íslands flytur félagið helst ferskar vörur, t.d. grænmeti og ávexti, en einnig tölvur, varahluti, lyf og tískuvörur. Þá flytur félagið mikið af humri frá N-Ameríku til Evrópu auk varnings frá Evrópu til N-Ameríku.

Á viku hverri er boðið upp á um 140 brottfarir til Evrópu á fragt og farþegavélum sem samtals geta borið um 1.700 tonn og um 50 brottfarir til N-Ameríku sem samtals geta borið um 500 tonn á viku. Auk þess er boðið upp á framhaldsflutninga með flutningabílum um alla Evrópu og N-Ameríku, sem og framhaldsflug til fjarlægari markaða eins og Asíu.

„Við erum stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á svo fjölbreytt framboð af áfangastöðum í beinu fragtflugi og flutningsgetu upp á 2.200 tonn á viku hverri. Við tengjum Ísland við alla mikilvægustu markaði fyrirtækja landsins hvort sem á við inn eða útflutning, með upp allt að 20 ferðum á suma þeirra á viku beggja vegna Atlantshafsins. Þessi þjónusta er afar mikilvæg fyrir okkar viðskiptavini sem geta nálgast markaði sína á skemmri tíma með flutninganeti okkar en þekkist á okkar markaði. Við flytjum t.d. mikið af ferskum fiski frá Íslandi og þar gildir skammur flutningstími til að hámarka verðmæti og gæði vörunnar," segir Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.

Til baka

Þú ert hér:

  • > Um okkur
  • > Fréttir
  • > Icelandair Cargo getur flutt 2.200 tonn til 30 áfangastaða frá Íslandi á viku