Kristján Árnason hefur verið ráðinn stöðvarstjóri Icelandair Logistics í Liege og mun hann hefja störf mánudaginn 10. janúar 2011. Kristján mun hafa umsjón með daglegum rekstri Icelandair Logistics ásamt samskiptum við innlenda og erlenda viðskiptavini og samstarfsaðila fyrirtækisins.
Kristján hefur starfað í flutningageiranum í tæp 20 ár, síðast hjá Kuehne & Nagel í Luxemborg sem Operation Manager. Hann vann hjá DHL á Íslandi frá 1991-2005 við ýmiss stjórnunarstörf. Árið 2005 hóf Kristján störf hjá Eimskip þar sem hann stjórnaði flugdeild fyrirtækisins til ársins 2007 þegar hann flutti búferlum með fjölskylduna sína til Luxemborg.
Kristján er með BSc gráðu í Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Kristján er giftur Sigurlaugu Erlu Gunnarsdóttir og eiga þau tvær dætur.
Við bjóðum Kristján velkominn til starfa hjá Icelandair Cargo.
