
Þann 1. nóvember s.l. tók gildi nýr samningur milli Icelandair Cargo og DHL Express hraðflutningafyrirtækisins um leiguflug út frá Leipzig í Þýskalandi. Verkefnið snýr að flugflutningum innan Evrópu frá nýrri dreifingamiðstöð DHL í Leipzig en fyrirtækið flutti aðalbækistöðvar sínar þangað á síðasta ári . Ein af fimm Boeing 757-200 fraktvélum Icelandair Cargo mun annast þetta verkefni og gildir samningurinn fram á mitt ár 2011.
Þetta verkefni bætist við 3 önnur sambærileg leiguverkefni sem Icelandair Cargo vinnur í samstarfi við TNT Express víðsvegar um Evrópu.