
Golfmót Icelandair Cargo var haldið í Grafarholti 27. ágúst síðastliðinn í blíðskaparveðri. Spilað var eftir svokölluðu Florida Scramble fyrirkomulagi þar sem 4 eru saman í holli og keppa saman til vinnings. Að þessu sinni voru Icelandair, Flugfélag Íslands, Vox veitingahús og Örninn golfverslun okkur innan handar með verðlaun. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í mótinu að þessu sinni fyrir samveruna.
Sjáumst hress að ári
Sjá myndir af mótinu hér