Nýr stöðvarstjóri hjá Icelandair Cargo á JFK flugvelli

16.08.2010

Nýr stöðvarstjóri hjá Icelandair Cargo á JFK flugvelli.

Karl Óðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn stöðvarstjóri Icelandair Cargo á JFK flugvelli. Jón Theodorsson núverandi stöðvarstjóri Icelandair Cargo mun halda starfi sínum áfram til loka febrúar 2011, en þá mun Karl taka við. Karl mun ganga til liðs við starfsfólk okkar í Bandaríkjunum frá og með 1. september sem almennur starfsmaður og í framhaldi af því sem stöðvarstjóri þegar Jón hættir störfum. Karl er fæddur árið 1983 og hefur viðskiptafræðigráðu frá Háskólanum á Akureyri. Karl Óðinn hefur unnið hjá Icelandair Cargo meira eða minna síðan árið 2004, bæði í Keflavík og á aðalskrifstofu í Reykjavík.

Jón Theodorsson hefur unnið hjá Icelandair Group frá árinu 1964, lengst af hjá Icelandair Cargo en einnig hjá Icelandair. Jón mun halda áfram að vinna á JFK til loka árs sem stöðvarstjóri Icelandair Cargo og eftir það mun hann starfa sem ráðgjafi fyrir fyrirtækið í nánustu framtíð.

Vinsamlegast takið vel á móti Karli og að sama skapi langar mig að nota tækifærið og óska honum alls hins besta í nýju starfi.

Til baka

Þú ert hér:

  • > Um okkur
  • > Fréttir
  • > Nýr stöðvarstjóri hjá Icelandair Cargo á JFK flugvelli