Fyrir skemmstu hóf Icelandair áætlunarflug til Þrándheims í Noregi. Flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 8. október í haust með viðkomu í Bergen á leiðinni frá Íslandi.
Icelandair hefur um árabil flogið daglegt áætlunarflug til Osló, en hóf fyrir þremur árum reglulegt flug til Bergen á vesturströnd Noregs. Í sumar verður flogið 10 ainnum í viku til Osló, fjórum sinnum í viku til Bergen og tvisvar í viku til Þrándheims og Stavanger.
Icelandair Cargo selur fraktpláss í farþegavélum Icelandair. Um árabil hefur Osló verið fastur liður í framboði Icelandair Cargo og Þrándheimur er góð viðbót fyrir viðskiptavini okkar sem eru í viðskiptum við aðila í Noregi.

