Ótrúlegur sveigjanleiki hefur verið í flugáætlun Icelandair og dótturfyrirtækjum þess síðustu daga og vikur í kjölfar eldgoss í Eyjafjallajökli. Icelandair Cargo lét ekki sitt eftir liggja þá daga sem ekki var flogið til helstu flugvalla í Evrópu og eins þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist.

Með sterkan hóp fólks í brúnni var ráðist í að færa tól og tæki, þ.m.t flugvélar, til Akureyrar og þaðan var starfsemi Icelandair Cargo stýrt helgina 23-26 apríl síðastliðinn og aftur aðra helgina í maí. Ýmis vandamál og áskoranir komu upp sem allar voru leystar jafn óðum sem gerði vélum okkar kleift að fara í loftið og með því þjónusta okkar viðskiptavini eins vel og hægt var við þessar aðstæður, á meðan aðrar vélar voru kyrrsettar.

Við flugum ávallt með öryggi áhafna okkar og starfsfólks á jörðu niðri að leiðarljósi og tókst vel að sameina það við góða þjónustu með samstilltu átaki allra starfsmanna Icelandair Cargo, ásamt starfsfólki víðs vegar að úr Icelandair og dótturfyrirtækjum þess. Við færum viðskiptavinum okkar bestu þakkir fyrir samvinnuna á þessum krefjandi tímum og vonum að það versta sé yfirstaðið !

