Nýtt aðsetur New York skrifstofu

03.05.2010

Nýtt aðsetur New York skrifstofu

Icelandair Cargo hefur um langt skeið starfrækt söluskrifstofu á JFK flugvelli í New York.   Skrifstofan sér um sölutengd mál varðandi Norður Ameríku, þ.e.  innflutning til Íslands og gegnumflutning frá Norður Ameríku til Evrópu.

Nýlega var skrifstofan flutt í byggingu 261 á flugvellinum.   Flutt var í nýlegt vöruhús CAS (Cargo Airport Services) sem sjá um vöruafgreiðslu fyrir Icelandair Cargo.   Nýja vöruhúsið er á öllum sviðum framar en eldra CAS vöruhúsið þar sem við vorum áður.   Nýja aðstaðan er margfalt stæri og í henni hefur Icelandair Cargo sitt eigið afmarkaða svæði.   Í vöruhúsinu eru öflugir og stórir kælar sem koma að góðum notum fyrir fiskútflutninginn frá Íslandi og fyrir grænmetisinnflutning.

Skrifstofustjóri Icelandair Cargo í New York er Jón Theodórsson.  Á skrifstofunni vinna fimm starfsmenn og er það trú þeirra og annarra starfsmanna og stjórnenda að breytingin verði til hagsbóta fyrir viðskiptavini Icelandair Cargo.

Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri, Sigurgeir Már Halldórsson forstöðumaður innflutnings, Jón Theodórsson stöðvarstjóri JFK Cargo, Mikael Tal Grétarsson forstöðumaður útflutnings

Til baka

Þú ert hér: