Mikael Tal Grétarsson formaður Flutningasviðs SVÞ

29.03.2010

Mikael Tal Grétarsson formaður Flutningasviðs SVÞ

Mikael Tal Grétarsson, forstöðumaður útflutnings hjá Icelandair Cargo, hefur tekið við formennsku Flutningasviðs Samtaka Verslunar og Þjónustu (SVÞ). Flutningasvið eru hagsmunasamtök flutningafyrirtækja á íslandi um ýmis sameiginleg hagsmunamál greinarinnar. Meðal fyrirtækja sem eiga sæti í Flutningasviði eru Eimskip, Samskip, Nesskip, Olíudreifing og Íslandspóstur ásamt fleiri fyrirtækjum í flutningum og flutningatengdri starfsemi. Hingað til hefur enginn aðili úr flugflutningum gengt formennsku.

Við óskum Mikael innilega til hamingju.

Til baka

Þú ert hér: