
Í dag fór ný vefsíða Icelandair Cargo í loftið. Vefsíðan er sett upp í vefsumsýslukerfinu Vyre sem TM-Software þjónustar. Flestir vefir fyrirtækja innan Icelandair Group er í sama vefkerfi.
Eins og sjá má hefur allt útlit verið tekið til endurskoðunar og efni og innihald einnig.
Ýmsar virknieiningar hafa einnig verið betrumbættar.
Flugáætlun
Flugáætlunin sýnir flug dagsins og nýjustu hreyfingar á þeim, þ.e. brottför/koma áætlaða tíma og rauntíma. Upplýsingar eru fengnar úr RM flugáætlunarkerfi Icelandair.

Rekja og finna
Rekja og finna notar vefþjónustu frá CHAMP og skilar niðurstöðu úr bókunarkerfi Icelandair Cargo. Leitarvélin skilar þannig helstu áföngum í ferli sendingar frá bókun til afhendingar á móttökustað.
