10 ára afmæli Icelandair Cargo

22.01.2010

10 ára afmæli Icelandair Cargo

Icelandair Cargo og starfsmenn fyrirtækisins fagna 10 ára afmæli í dag 22.janúar.

Saga fraktflugs hjá Icelandair og forverum þess nær 70 ár aftur í tímann.   Fraktdeild Flugleiða var stofnuð 1973 og starfaði sem slík í gegnum árin en árið 2000 var fraktdeildin gerð að sjálfstæðu dótturfyrirtæki Icelandair Cargo.

Á 10 árum hefur umfang starfseminnar breyst mikið.  Í upphafi var 1 fraktvél í rekstri en 10 árum seinna eru þær orðnar 5.  Fyrir utan flutninga til og frá Íslandi hafa leiguverkefni verið vaxandi þáttur í starfseminni og gegnumflutningur (transit) átt sinn sess.

Icelandair Cargo rekur starfsstöð í New York og dótturfyritæki í Liege Belgíu.   Höfuðstöðvar félagsins eru að Brautarholti 10-14 en skrifstofa í Keflavík ásamt tollmiðlun. 

Til baka

Þú ert hér: