
Fraktflugvélar Icelandair Cargo hafa verið merktar með merki íslensks sjávarútvegs um ábyrgar veiðar og slagorðinu Absolutely Fresh.
Flutningur á ferskum sjávarafurðum frá Íslandi á markaði erlendis er ein af undirstöðunum í starfsemi Icelandair Cargo. Merkingin er viðleitni félagsins til að styðja markaðsstarf íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuðum. Leiðarkerfi Icelandair Cargo gegnir lykilhlutverki við að tryggja ferskleika, gæði og áreiðanleika íslenskra sjávarafurða. Ferskur fiskur er verðmætasta útflutta sjávarafurð íslendinga.
"Flutningur á ferskum fiski hefur aukist mjög hjá okkur síðustu misseri og er ein af undirstöðum í starfsemi Icelandair Cargo. Við markaðssetningu og verðmætasköpun á ferskum sjávarafurðum, skipta auk ferskleika ýmsir aðrir þættir veigamiklu máli, svo sem áreiðanleiki, afhendingaröryggi og síðast en ekki síst sjálfbærni fiskistofna. Íslandi hefur verið í fararbroddi í heiminum í ábyrgri fiskveiðistjórn. Þetta merki er tákn íslensks uppruna og ábyrgra veiða og er til þess ætlað að byggja traust og þekkingu viðskiptavina á vörunni. Við viljum vera öflugur liðsmaður í þessari starfsemi og berum merki íslenskra sjávarafurða með miklu stolti á farkostum okkar,“ segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.
Icelandair Cargo rekur nú fimm Boeing 757-200 fraktvélar, tvær sem fljúga til og frá landinu í áætlunarflugi og þrjár sem sinna ýmsum verkefnum í Evrópu. Auk þess selur Icelandair Cargo flutningarými á öllum áætlunarleiðum Icelandair, en félagið býður þjónustu til tæplega þrjátíu staða beggja vegna Atlantshafsins.
Icelandair Cargo rekur söluskrifstofu í Reykjavik, vöruafgreiðslu í Keflavík og hefur eigin sölu- og vöruafgreiðslu í New York í Bandaríkjunum. Þá á félagið dótturfyrirtækið Icelandair Logistic sem rekur starfsemi félagsins í Benelux löndunum og sér um afgreiðslu flugvéla í Liege í Belgíu. Þá hefur félagið mjög öflugt umboðsmannakerfi í flestum löndum Evrópulöndum sem og á öllum helstu mörkuðum Asíu.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, sími 840 7077.
Á myndunum er fraktvél Icelandair Cargo með merki íslensks sjávarútvegs og slagorði fyrirtækisins Absaloutly Fresh, í flugtaki.
