
Ísland eða Keflavíkurflugvöllur er núna formlega nýr e-Freight áfangastaður IATA (International Air Transport Association).
Fyrsta sendingin sem e-freight fór frá Amsterdam til Keflavíkur þann 17.nóvember frá flutningsmiðlaranum Rhenus Air B.V. til Jóna Transport hf.
Til að byrja með verður E-freight á leiðinni Keflavík - Amsterdam/ Amsterdam - Keflavík og milli Rhenus og Jóna. Í framhaldinu verður öðrum flutningsleiðum bætt við og þeim flutningsmiðlurum sem áhuga hafa. Í næsta fasa verður skoðað að koma almennum viðskiptavinum inn í e-freight, t.d. fiskútflytjendum.
E-freight verkefni IATA gengur út á það að minnka sem mest pappír sem til þessa hefur verið sendur með frakt. Þetta er t.a.m. farmbréfið sjálft, undirfarmbréf og önnur undirgögn. Í staðinn fyrir pappír er notast við rafræn skjöl og skönnuð skjöl. Flæði þessara gagna er annarsvegar milli flutningsmiðlara til flutningsmiðlara og hinsvegar milli flutningsmiðlara og flugfélaga. Auk þess koma inn í ferlið afgreiðsluaðilar og tollayfirvöld.
Unnið var í verkefninu í vor og sumar. Í október voru gerðar prófanir og e-Freight endanlega sett í gang þann 17. nóvember. Að verkefninu komu IATA, Tollstjóri, Icelandair Cargo, Jónar Transport, TVG-Zimsen, Icetransport og samtök verslunar og þjónustu.
IATA e-freight er núna komið upp í 23 löndum og 107 flugvöllum.
Nánar má lesa um IATA e-freight á heimasíðu IATA [hér]