
Fyrir skemmstu var flogið leiguflug með veðhlaupahesta frá Bandaríkjunum.
Flogið var frá Liege í Belgíu til Louisville Kentucky þar sem 51 veðhlaupahestar fóru um borð. Flogið var frá Louisville til Deauville í Frakklandi og 40 hestum afhlaðið þar.
Næst var flogið til Stansted í Bretlandi og 11 hestar afhentir þar. Að lokum var flogið til Liege í Belgíu,
Með þessu flugi voru einnig 4 hestasveinar um borð sem pössuðu upp á "farþegana" í hvívetna.
Flug eins og þetta krefst mikils undibúnings og skipulagningar.
Flugið gekk í alla staði mjög vel og allri gengu sáttir frá borði.
Til baka